föstudagur, október 15, 2004

Þetta tímabil sem ég er að ganga í gegnum núna er svona tímabil sem ég á eftir að hugsa til baka til í niðursveiflu í framtíðinni og hugsa hvað ég sakna þess að vera á þessum stað í lífinu. DJÖFull er ógeðslega gaman að vera til og djöfull er gott að minna sig á það alla daga.
Allt það sem ég óskaði mér fyrir ári síðan er að rætast!

Óskir eru til að rætast og prinsipp eru til að brjóta...

Tíminn á íslandi er hálfnaður og í nú fer alvaran að taka við(ekki það að það sé ekki alvara lífsins að sitja blidfullur kl 6 í morgunverðarhlaðborði með lögfræðinemum á HótelSögu). Næsta vika fer í IcelandAirwaves og ég held að það verði rosa gaman. Í kvöld er partý hjá SvönsuogRagnari. Þemað er HollywoodStjörnur! Hvað á ég að gera? Ég hef uþb 9 tíma til að redda mér hugmynd og búning..... HJÁLP!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

shannen doherty. ert með dökkt hár og þarft eiginlega engan búning. talar bara æðislega mikið æðislega illa um paris hilton go valerie. die val die var immit uppáhaldssetningin mín í þáttunum góðu. nú...eða þú getur líka talað æðisleg amikið um hvað margir hata þig á netinu. alltaf gott partýtrikk. sérstaklega ef mar er shannon doherty. get ég ímyndað mér. bets.

Maja pæja sagði...

Æ það er svo frábært að vera á svona tímabili... get ekki beðið eftir að rísa upp úr meðalmennskunni í hæstu hæðir :-)