miðvikudagur, júlí 31, 2002

veeeeeeeeeeeiiiiiiiiiiii!!!!! jibbí jei jibbí jibbí jei...ég er að fara til ÚKLANDA í dag!!!!


Núna er ég komin í vinnunna með alla farangurinn, alveg hress! Fer bara beint uppá völl héðan! Alveg hress....
Oh ég kvíði samt fyrir fluginu...ég þoli ekki að vera í flugvél. Breytist í annan persónuleika, gæti framið fjöldamorð. Hinn týpiski íslendingur fer alveg óendanlega mikið í taugarnar á mér í flugvél; e-ð lið sem röltir um vélina og svona stutt tjatt við hinn og þennan, fólkið sem reynir að fá eins mikið að ókeypis drykkjum og uppáhaldið mitt er klappið við lendingu....HVAÐ ER ÞAÐ??? OOOH, æ ég ætla ekki að fara að hugsa um "þau" strax! Hugsa frekar um Köben...kaffihúsin, búðirnar, bjórinn, sólina, stemmninguna, litlu göturnar...mmmmm! Hér kem ég!

Engin ummæli: