miðvikudagur, júlí 17, 2002

Í kvöld er ég að fara að bjóða vinafólki mínu í mat....
mér finnst þetta ekkert smá cool! Ég er svo mikil húsfreyja þessa dagana. Þvottvélin komin í lag og ég verslaði í Bónus í gær. Ég fór sko þangað inn til að kaupa mér djús eða e-ð. Varð allt í einu óð. Keypti bara og keypti...húsmóðirin í maníu kasti bara eða e-ð! Keypti handsápu á tilboði og svona!
En allavega í kvöld koma til mín, beint úr 111 GETTÓ RVK þau Sara, Dóri og Jói! Þetta lofar góðu enda með endæmum skemmtilegt fólk hér á ferð:)
Jói ætlar að koma með rafmagnshlaupahjólið sitt sem hann keypti á Costadelsol. Mér finnst það mega cool og ætla að fá að fara einn hring í hverfinu heima.

Engin ummæli: