þriðjudagur, júlí 30, 2002

Æ ég er á einhvern hátt svo lítil í mér í dag. Í gær hrundi soldið innan í mér sem ég var búin að vera svo dugleg að vinna í í margar vikur. En svona er lífið...það er í bylgjum. Og í rauninni verðum við í senn að reyna að njóta þeirra og hafa stjórn á þeim. Ég er ekki nógu dugleg að standa með mér og hjartanu mínu. En ég er að læra....
Eins og pabbi segjir: Diljá þú getur gert allt sem þú vilt
Hann er búin að segja þetta við mig síðan ég var lítil...hérna áður fyrr sagði ég alltaf: nei ég get ekki allt...ég get ekki flogið!

Pabbi og Kolla..ef þið lesið þetta; takk fyrir allt, þið vitið hvað ég á við bæði tvö!

Engin ummæli: