mánudagur, apríl 05, 2004

...já afmælisfjörið er þegar byrjað og klukkan er ekki orðin 12!!

ég á bestu húsfélugur í heimi! ég var hérna hálfdottandi áðan yfir sjónvarpinu þegar þær komu allar arkandi inní herbergið mitt með lúðra og afmælishatta og sungu afmælissönginn. Frammi er búið að skreyta allt í músastigum og fleira slingeríi... Svo fékk ég gjöfina mína. En það er ferð í einn skemmtigarðinn hérna í Hollandi og er ég búin að suða í fleiri vikur um að fara þangað. Alveg fullkomið.
Get ekki sagt annað en ég sofni með bros á vör allan hringinn!!!!
Góða nótt, góða mína afmælisnótt:)

Engin ummæli: