miðvikudagur, febrúar 02, 2005

Nú er ég flutt og mikið er ég ánægð. Þetta er risastór íbúð í fallegu gömlu húsi niðrí bæ. 3 húsum frá Hennes og ská á móti BaugsMagasin du Nord. Í nótt svaf ég í prinsessurúmi með dúnsængina sem mamma gaf mér í 23 ára afmælisgjöf, en hún er búin að vera í Hollandi í 9 mánuði. Eyddi nánast öllu kvöldinu í gær hjá Steven á næstu hæð að horfa á Fraiser á meðan hann dúllaðist í tölvunni minni. Þetta kallar maður góða nágranna!

Já það er gaman að vera til.

Á föstudaginn er BeachPartý í skólanum. Búið að panta 17 tonn af sandi og pálmatré. Vandamálið er í hverju ég á að klæðast?
Á laugardaginn fer ég til Köben að hitta Petru og við ætlum á þOrrablót...Hressandi!

Hvað varð um átakið "eftir12djömmumjólinætlaégaðróastídjamminu"????

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

mwahahaha átak smátak;)

já ættlaru ad skella tér á thorros? mmm gaman væri sko alveg til:)

Hurru koddu og fádu lánadann summer-boli hjá mér. á nóg af tessu:)

Hillsen Matthildur

herborg sagði...

Sjáumst á Þorrablótinu:) heheehhe.....ég reyndar keypti bara miða á ballið, ekki í matinn!