laugardagur, mars 18, 2006

Var að taka til í tölvunni minni og komst þá að því að því að ég átti heila möppu af allskonar myndum af hinu og þessu. Aðallega hef ég vistað myndir eða skjöl þegar vinir hafa sent mér. Fannst svo gaman að fletta í gegnum þetta að ég ákvað að setja þessa möppu á myndasíðuna. Það er að segja allt nema myndir af strákum sem vinkonur hafa verið að senda mér til að halda mér upplýstri um einkalíf sitt. Hafði það ekki í mér:)

sent og seifað



Annars allt gott að frétta héðan úr Californiu.
Geri samt lítið annað en að lesa komment sem fólk er að skilja eftir sig hérna á blogginu. Úff allt of mikið!! Gjörið svo vel að slaka á krakkar, ha?......

Er á leiðinni í matarboð í kvöld, tapas og stelpur og hvítvín á tilboði. Svo á írskan pöbb að halda uppá dag (heilags) Patriks.
Og ég sem glími enn við hausverkinn sem er afleiðing gærkvöldsins. Á morgun fer ég á jazztónleika, því það er Jazzfestival i SF. Svo í 3falt afmæli, sem gera 3 þemu skilst mér. Á sunnudag er ég að fara á date með mÅns(ter) mínum, og það verður á tónleikum Jose Gonsalez.

Góða helgi
Bæjó

6 ummæli:

sunnasweet sagði...

Æii dúllísnúll...sakna þín...ég María Rut og Frímann fórum á djamm í gær...þú hefðir verið góð viðbót í teymið....kiss kiss knús og kram

Dilja sagði...

ó´já, hefði sko verið til í að hafa verið með ykkur í tælensku karaókí!!

vei vei

Maja pæja sagði...

Já þú hefðir líka passað vel með okkur Tinnu á Rent.... alveg Kastalafílingur sko :)

Nafnlaus sagði...

Oh já það vantaði sko þig í Santa Fe slash kastala reunion síðasta laug! Snilldar mynd en úff hvað við grenjuðum báðar á henni..

Nafnlaus sagði...

http://youtube.com/watch?v=pYak2F1hUYA

Yggla sagði...

æðislegar myndir hjá þér... kannast nú alveg við einn, tvo, jafnvel þrjá...

ehe...hömmm!!!

but have fun in the sun beibí...

talandi um djammferðir...þú hefur nú átt vel heim í þeim nokkrum sem verið hafa farnar...