þriðjudagur, september 25, 2007

Gyðjur undir jökli


Næstu helgi tek ég mér húsmæðraorlof ásamt Maríu Rut og er ferðinni heitir í kvennaferð upp undir Snæfellsjökul, er það ekki örugglega besti staður landsins?
Þetta er nokkurskonar námskeið og gengur undir nafninu
Gyðjur og gleði-orkuhelgi fyrir konur undir jökli
Inniheldur tildæmis:
* dansjóga * orkudans * dans Gyðjunnar * jógaleikfimi / orkustöðvajöfnun * sund í ölkeldulaug / heitur pottur * gönguferðir / útivera * grænmetisfæði og hreinsun * hvíld og slökun
* hópsöngur * sögur * tími fyrir þig / kyrrð * meiri orka * útrás og umbreyting
* skemmtileg sjálfstyrking / hugrekki * að uppgötva Gyðjuna sína * náttúruleg fegurð / innri fegurð
* styrkjum kvenleika okkar / kvenorku * uppbyggilegar leiklistaræfingar * jákvæður máttur hugans
* tengjast betur innsæi þínu og flæði * himneskar ilmolíur
Sjá meira á www.pulsinn.is

Úff hvað þetta er innilega mikið ég! Asskotas vessjen á manni! :) Hlakka allavega alveg rosalega mikið til.

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vá hvað ég öfunda ykkur. þetta hljómar ekkert smá spennó.

Dilja sagði...

hver ert þú fröken nafnlaus?

Ragnar sagði...

ekkert rauðvín, no cow... ekki viss um að jules de verne væri sáttur með það, svona verandi við hlið hels

Dilja sagði...

jules de verne já?

Kamilla sagði...

Vá, þetta er svo mikið þú að það ætti að heita "Gyðjur og gleði-orkuhelgi fyrir Diljá undir jökli"!!!

Býst þá við að sjá þig hressa og endurnærða á mánudaginn. Vííííí!

Lovjú,
Mill

Nafnlaus sagði...

hljómar ekkert smá vel... ég þyrfti að taka mér eina svona helgi við tækifæri...njótið vel :D

Nafnlaus sagði...

Hæ engill.
Hlakka líka til að hitta þig í kvolití tæm. Væri mikið til í að pússla við hlið þér ef ég gæti horft niður fyrir bumbunni :)
Nei það er sko ekki til lengra en endalaust enda þess vegna sem ég elska þig endalaust :)
Knús
Kolla og Lilli

Nafnlaus sagði...

ohoo hvað ég öfunda þig akkúrat núna, það er ábyggilega geggjað gaman hjá þér. Það er laugardagur by the way og klukkan er 16:14, ætli þú sért ekki að gera uppbyggilegar leiklistaræfingar núna??!! ;)

Nafnlaus sagði...

Prump!

Nafnlaus sagði...

nafnlaus var ég Svanhvít thea. Vonandi var þetta æðisleg helgi hjá ykkur. Ég er komin til london að spóka mig með mömmu í nokkra daga