miðvikudagur, janúar 17, 2007

To all of you....

Þetta blogg er tileinkað öllum þeim bloggurum sem eru alltaf að blogga um svona þjóðmál og dægurmál. Öllum þeim sem hafa svona skooooðanir á hlutunum, og hugsa með gagnrýnni hugsun. -Já svona gáfuðu fólki, því eins og við vitum öll er heimskt að vera sáttur og sammála! Öllum þessum frægu sem blogga, því frægt fólk er einfaldlega betra. Öllum þessum reiðu bloggurum, sem þola ekki neitt og finnst allt alveg óskaplega hallærislegt. Öllum þeim sem hafa gerst svo merkilegir að búa til nýja íslensku og segja "hellað" og "pípólið". Og öllum feitubollunum sem hafa fundið hinn eina sanna vilja til að vigta sig og matinn og segja frá því í netheimum. Ó já Ó já!

Þetta var fyrir ykkur elskurnar mínar!

Ég held svo bara áfram að gera mitt.
Langar að benda ykkur á hana Esther bekkjarsystir mína.
Ótrúlega sérstaka rödd og falleg lög. I like (er ég ekki örugglega sú eina með þennan djók á heilanum?)
Svo langar mig að benda á Hlédísi í Indlandi og Sigrúnu Ósk vinkonu hennar. Svona ef ykkur langar til að hlægja þeas!

3 ummæli:

Sigríður sagði...

Jú, ég held þú sért meira að segja frumkvöðullinn að þessum djóki!!

Nafnlaus sagði...

Heyr heyr.. þú ert samt ekki búin að vinna ömurlegheitabloggkeppnina... ég er WAY AHEAD OF YOU !! hehe sí jú in skúl túmorróv

Dilja sagði...

á ég ekki að fá golden globe?

heebs, ekki svona sigurviss! það dregur úr vinninglíkum skal ég segja þér!

ó sei--ó sei