föstudagur, október 31, 2008

Heimatilbúnir málshættir

Þegar við vinkonurnar vorum á menntaskólaárunum bjuggum við til málshátt (sem ég vona að foreldrar mínir lesi ekki hér) en hann hljóðaði svo:
"Að fara graður út á djammið er eins og að fara svangur út að versla"
Obboðsslega djúpt e-ð;)

En ég bjó til nýjan bara áðan:
"Að byrja aftur að blogga eftir pásu, er eins og að byrja aftur í ræktinni eftir jólin"

Gaman að þessu.
Annars sit ég hérna á Te og Kaffi í Saltfélaginu og er að undirbúa mig fyrir að halda námskeið í Verkefnastjórnun í vinnunni. Eða í CCP. Já nú vinn ég þar fyrir þá sem ekki vita.
Mér líður smá eins og ég sé að undirbúa mig fyrir munnlegt próf. En minni mig þó á að eina sem skiptir máli er ba ba ba bara að vera í stuði.

Bæjó

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Get bara ekki lýst gleði minni yfir því að þú hafir bloggað! Var alveg búin að gefa upp vonina bara!

Jeiiiii...mikið ossalega er ég glöð:D Veit þú rúllar'essu upp...sko v-stjórnuninni. Væri alveg til í að fara á sollis námskeið hjá þér. Eða bara hverfa til baka til j-fræðslunnar...manstu...traustleikir og sollis. Jiiihh (á innsoginu) hvað það var gaman. Knúz frá Brúnhildaaaaa

Maja pæja sagði...

Vei, smá blogg :) spennandi námskeið framundan... en úff munnlegt próf, fyrir þau sat ég alltaf á klósettinu með pípandi! ;)

Nafnlaus sagði...

nei sko mætt aftur loksins...
En já best að vera í stuði bara. Væri alveg til í að vera með í svona námskeiði.. ætlarðu að tala um organisations,, eða orgasmssss
tin

Dilja sagði...

já ég ætla að tala um lifandi fullnægingar og mikilvægi þeirra til að stjórna og vera stjórnað í verkefnavinnu.
Its da true art;)